Vegrún er merkinga- og leiðakerfi sem er opið öllum til notkunar. Það er sérstaklega hannað til að falla að náttúru Íslands.
Allir staðir búa yfir sögu ef vel er að gáð. Til að skilja hvað landið hefur að segja okkur og til að vita hvernig best er að rata notum við merkingar. Sá sem fer um landið þarfnast skilta sem vísa veginn, fræða og leiðbeina. Eftirtektarverðir staðir sem heimildir og sagnir geta um eða eru einstakir sökum náttúrulegra aðstæða lifna við þegar lesa má á skiltum það sem landið fær ekki sagt.
Vegrún er merkinga- og leiðakerfi fyrir landið allt. Vegrún sýnir hvernig búa má til skilti og hvernig best er að sýna upplýsingar á skiltum og merkingum. Vegrún samræmir leiðamerkingar fyrir stíga og götur, segir fyrir um smíði merkinga og skilta, efnið í þeim og stærð þeirra. Vegrún sýnir hvernig koma á upplýsingum á framfæri með letri, lit og myndum.
Allir geta nýtt sér kerfið til að gera áfangastaði aðlaðandi, veita nauðsynlegar upplýsingar eða hjálpa ferðafólki að rata. Stærð skiltis og merkingarnar á því ráðast af aðstæðum. Notendur geta gengið að kerfi sem er opið og aðgengilegt og sótt þangað allt sem þeir þurfa til að setja upp merkingar og leiðarvísa.
Vegrún er vandlega hugsað verkfæri í þjónustu allra sem þurfa á merkingum að halda. Þar fara saman sérhannað letur, litasamsetningar sem henta aðstæðum í náttúru Íslands og skilti sem þola ágang veðurs og vinda. Samræmt merkinga- og leiðarkerfi fyrir allt landið eykur öryggi þeirra sem ferðast, hjálpar ferðalöngum að skilja það sem fyrir augu ber og eykur ánægjuna af landinu og töfrum þess.