2.5

Saman­tekt

Eðli verk­efnis, fjár­mögnun, undir­bún­ingur og hvort ráðast þurfi í skipu­lags­breyt­ingar eða mat á umhverf­isáhrifum ræður mestu um tímann frá hugmynd að fram­kvæmd. Hafa þarf í huga að einstakir þættir í undir­bún­ingnum geta skarast eða verið unnir samhliða. Upplýsingar um tímaramma á mynd­inni hér að neðan eru settar fram til að gefa almenna hugmynd. Mikil­vægt er að huga sérstak­lega að þessum þáttum við gerð tíma­áætl­unar fyrir hvert verk­efni fyrir sig.